Fréttir

Niðurstaða í hönnunarsamkeppni: Nordic Office of Architecture hlýtur fyrstu verðlaun í samkeppni um nýja stúdentagarða á Akureyri

Arkitektastofan Nordic Office of Architecture hlýtur fyrstu verðlaun í samkeppni um hönnun á nýjum stúdentagörðum fyrir Félagsstofnun stúdenta Akureyri (FÉSTA). Samkeppnin var auglýst 16. október 2023 og var unnin í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Skilafrestur tillagna var til 25. janúar sl. og bárust ellefu tillögur innan settra tímamarka.