
Klettastígur 2 og 4 eru tvö hús með 19 íbúðum. Samtals eru þetta átta þriggja herbergja íbúðir, tíu tveggja herbergja íbúðir og ein stúdíóíbúð, en hún er fullbúin með húsgögnum og búnaði. Það eru tvær íbúðir á hverju hæðarþrepi, þar sem önnur er tveggja herbergja og hin þriggja herbergja. Á jarðhæð beggja húsa er íbúð með aðgengi fyrir einstaklinga með hreyfihamlanir. Allar íbúðirnar eru með geymslu, ísskáp, eldavél, tengi í eldhúsi fyrir þvottavél eða uppþvottavél, og fataskápum. Í húsunum er sameiginlegt þvottahús með þvotta- og þurrkaðstöðu, og hjólageymsla.
- Samgöngur: Frá Klettastíg er um tíu mínútna gangur að háskólasvæðinu á Sólborg, og stutt í strætóstopp.
- Umhverfi: Skammt frá Klettastíg er leikskóli á vegum Akureyrarbæjar, grunnskóli, sundlaug, líkamsrækt og folf-völlur. Þaðan er stuttur gangur í miðbæ Akureyrar.
- Orka: Rafmagn og hiti er föst tala, endurreiknuð í ágúst ár hvert.
- Tæki og búnaður: Íbúðirnar eru búnar ísskáp og eldavél. Þvottavélar og þurrkarar eru í sameiginlegu þvottahúsi á jarðhæð.
- Úthlutunarreglur: Umsóknum er raðað í forgangsröð eftir úthlutunarreglum.
- Internet: Í öllum íbúðum FÉSTA er ljósleiðari frá Tengi. Þannig geta íbúar pantað sér internetþjónustu frá þeim þjónustuaðila sem hentar og greiða fyrir það sérstaklega.
- Viðskilnaður húsnæðis: Líkt og gengur og gerist á leigumarkaðnum eiga allir íbúar FÉSTA að skilja við leiguhúsnæði sitt á snyrtilegan hátt. Hér má nálgast gátlista fyrir viðskilnað íbúða.
- Umgengnisreglur: Íbúar eru hvattir til að kynna sér og fara eftir umgengnisreglum húsnæðis í eigu FÉSTA, sjá hér.
| Verðlisti í júní 2026* |
Stærð
|
Verð
|
+rafmagn og hiti (áætlað)**
|
| Stúdíó íbúð |
54 fm. 10 fm. sameign.
|
kr. 131.500,-
|
kr. 138.000,- |
| Tveggja herbergja íbúðir |
54 fm. 10 fm. sameign. |
kr. 148.951,-
|
kr. 155.000,- |
| Þriggja herbergja íbúðir |
64 fm. 10 fm. sameign. |
kr. 176.631,- |
kr. 184.000,- |
Að auki greiðir hver íbúð 3.100kr á mánuði fyrir sameignaþrif.
*Leiguverð er bundið við neysluvísitölu og breytist mánaðarlega samkvæmt henni
**Kostnaður vegna hita og rafmagns eru jafnar greiðslur, uppfært í ágúst hvert ár.
Ertu í síma? Smelltu hér fyrir myndir.