Klettastígur 2 og 4

Klettastígur 2-4-6

Klettastígur 2 og 4 eru tvö hús með níu íbúðum hvort. Samtals eru þetta átta þriggja herbergja íbúðir og tíu tveggja herbergja íbúðir. Það eru tvær íbúðir á hverju hæðarþrepi, þar sem önnur er tveggja herbergja og hin þriggja herbergja. Á jarðhæð beggja húsa er íbúð með aðgengi fyrir einstaklinga með hreyfihamlanir. Allar íbúðirnar eru með geymslu, ísskáp, eldavél, tengi í eldhúsi fyrir þvottavél eða uppþvottavél, og fataskápum. Í húsunum er sameiginlegt þvottahús með þvotta- og þurrkaðstöðu, og læst hjólageymsla. Við húsin er svo ruslageymsla. 
  • Samgöngur: Frá Klettastíg er um tíu mínútna gangur að háskólasvæðinu á Sólborg, og stutt í strætóstopp. 
  • Umhverfi: Skammt frá Klettastíg er leikskóli á vegum Akureyrarbæjar, grunnskóli, sundlaug, líkamsrækt og folf-völlur. Þaðan er stuttur gangur í miðbæ Akureyrar. 
  • Orka: Rafmagn og hiti eru á sameiginlegum mælum.
  • Tæki og búnaður: Íbúðirnar eru búnar ísskáp og eldavél. Þvottavélar og þurrkarar eru í sameiginlegu þvottahúsi á jarðhæð.
  • Úthlutunarreglur: Umsóknum er raðað í forgangsröð eftir úthlutunarreglum
  • Internet: Í öllum íbúðum FÉSTA er ljósleiðari frá Tengi. Þannig geta íbúar pantað sér internetþjónustu frá þeim þjónustuaðila sem hentar og greiða fyrir það sérstaklega.
  • Viðskilnaður húsnæðis: Líkt og gengur og gerist á leigumarkaðnum eiga allir íbúar FÉSTA að skilja við leiguhúsnæði sitt á snyrtilegan hátt. Hér má nálgast gátlista fyrir viðskilnað íbúða. 
  • Umgengnisreglur: Íbúar eru hvattir til að kynna sér og fara eftir umgengnisreglum húsnæðis í eigu FÉSTA, sjá hér
Verðlisti í mars 2024*
Stærð
Verð
+rafmagn og hiti (áætlað)**
Tveggja herbergja íbúðir  54 fm.
10 fm. sameign.

kr. 139.487,-

kr. 146.000,-
Þriggja herbergja íbúðir 64 fm.
10 fm. sameign.
kr. 156.871,-  kr. 163.000,-

*Leiguverð er bundið við neysluvísitölu og breytist mánaðarlega samkvæmt henni

**Kostnaður vegna hita og rafmagns eru jafnar greiðslur, uppfært í ágúst hvert ár. 

Ertu í síma? Smelltu hér fyrir myndir.