Kjalarsíða 1a og 1b

troll

Kjalarsíða 1A og B eru fjögurra hæða fjölbýlishús með 20 íbúðum hvort. Fimm íbúðir eru á hverri hæð. Í húsunum eru tólf tveggja herbergja íbúðir og 28 þriggja herbergja íbúðir. Í hverri íbúð er geymsla. Í nágrenni við húsin rekur Akureyrarbær leikskóla

  • Samgöngur: Frá Kjalarsíðu er um átta mínútna gangur að háskólasvæðinu að Sólborg, og stutt í strætóstopp.
  • Umhverfi: Leikskóli er við húsin og stutt er í grunnskóla. Í næsta nágrenni er útivistarsvæði og folf-völlur, líkamsræktarstöð , verslunarkjarninn Sunnuhlíð og Krambúð sem er opin allan sólarhringinn. 
  • Orka: Rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð, en hiti er á sameiginlegum mæli. 
  • Tæki og búnaður: Í íbúðunum er kæliskápur og eldavél. Þvottavélar og þurrkarar eru í sameiginlegum þvottahúsum og notkun þeirra er gjaldfrjáls. 
  • Úthlutunarreglur: Umsóknum er raðað í forgangsröð eftir úthlutunarreglum
  • Internet: Í öllum íbúðum FÉSTA er ljósleiðari frá Tengir. Þannig geta íbúar pantað sér internetþjónustu frá þeim þjónustuaðila sem hentar og greiða fyrir það sérstaklega. 
  • Viðskilnaður húsnæðis: Líkt og gengur og gerist á leigumarkaðnum eiga allir íbúar FÉSTA að skilja við leiguhúsnæði sitt á snyrtilegan hátt. Hér má nálgast gátlista fyrir viðskilnað íbúða. 
  • Umgengnisreglur: Íbúar eru hvattir til að kynna sér og fara eftir umgengnisreglum húsnæðis í eigu FÉSTA, sjá hér

Verðlisti í mars 2024*

Stærð

Verð

+rafmagn og hiti (áætlað)**

Tveggja herbergja íbúðir

ca. 60 fm.

15 fm. sameign.

kr. 152.406,-

kr. 159.000,-

Þriggja herbergja íbúðir

ca. 73 fm.

15 fm. sameign. 

kr. 178.193,-

kr. 187.000,-

*Leiguverð er bundið við neysluvísitölu og breytist mánaðarlega samkvæmt henni

**Kostnaður vegna hita og rafmagns er jafnar greiðslur, er uppfært ágúst ár hvert.

 Ertu í síma? Smelltu hér fyrir myndir.