Útboð vegna nýrra námsgarða

Félagsstofnun Stúdenta Akureyri (FÉSTA) óskar eftir tilboðum í byggingu nýrra stúdentagarða við Norðurslóð 3-5-7 á Akureyri. Heildarstærð er um 6700 m2. Samtals eru 62 litlar íbúðir og 64 einstaklingsherbergi ásamt stoðrýmum og aðstöðu starfsfólks.
Helstu verkþættir eru:

  • Jarðvinna
  • Uppsteypa 3 húsa, 4-5 hæðir.
  • Allur frágangur að innan og utan.

Lóðarfrágangur.

  • Verktími er frá júlí 2026 – júní 2029.

Ósk um afhendingu rafrænna útboðsgagna skal senda á netfangið bjorgvin@avh.is .gögn verða afhent frá og með 19. maí 2026

Tilboð skulu berast rafrænt á netfangið bjorgvin@avh.is fyrir kl. 13:00 þriðjudaginn 23. júní og verða tilboðin opnuð kl. 13:30 hjá AVH Kaupangi á Akureyri í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Bjóðendum mun gefast kostur á að fylgjast með opnun í fjarfundi óski þeir þess.

Nýjir stúdentagarðar