Karfan er tóm.
Fyrsta skóflustunga að nýjum stúdentagörðum FÉSTA var tekin í dag, að Norðurslóð 3, 5 og 7. Nýju stúdentagarðarnir rísa á háskólasvæðinu og munu hýsa samtals 62 íbúðir, 64 einstaklingsherbergi og aðstöðu FÉSTA.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri Akureyrarbæjar hefur orðið. „Í dag fögnum við öll mikilvægu framfaraskrefi fyrir Akureyri og Háskólann á Akureyri. Með nýjum stúdentagörðum sem hér munu rísa skapast betri skilyrði fyrir námsfólk til að búa og mennta sig. Sem bæjarstjóri, fyrrum stúdent við Háskólann á Akureyri og íbúi á stúdentagörðunum er það alveg skýrt í mínum huga að þetta er sannarlega fjárfesting í framtíðinni og áframhaldandi þróun Akureyrar sem háskólabæjar.“

Skóflustunguna tóku Berglind Ósk, Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, Aðalbjörn Jóhannsson, formaður Stúdentafélags Háskólans á Akureyri (SHA), og Böðvar Ingi Guðjónsson, nýnemi í Sálfræðideild.
„Nýir stúdentagarðar skapa fleiri stúdentum aðgang að hagstæðu húsnæði og eru um leið mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu og eflingu námssamfélagsins á Akureyri,“ sagði Áslaug eftir að hafa mundað skófluna.