SUMARLEIGA

Félagsstofnun stúdenta við Háskólann á Akureyri, FÉSTA, er eigandi og rekstraraðili stúdentagarða á Akureyri.

Á sumrin, eða frá 1. júní til 15. ágúst, leigir FÉSTA hluta af húsnæðinu út meðan annars til starfsmanna háskólans og stéttarfélaga.  

  • Símanúmer umsjónarmanns stéttafélagsíbúða er 791-1087

 Til að fá upplýsingar um verð sendið fyrirspurnir á festa@unak.is


FÉSTA rekur stúdentagarða á fimm stöðum á Akureyri:

Útsteinn 

Útsteinn er að Skarðshlíð 46, gegnt íþróttasvæði Þórs. Þar eru sex íbúðir og 22 einstaklingsherbergi. 

Klettastígur

Klettastígur 2 - 4 - 6 standa á móti lögreglustöðinni á neðri brekkunni. 
Klettastígur 2 og 4 eru með níu íbúðir hvort hús, og Klettastígur 6 er með tólf einstaklingsherbergi. 

Drekagil

Drekagil 21 er átta hæða fjölbýlishús með 29 íbúðum og stendur í Giljahverfi. 

Tröllagil

Tröllagil 29 er níu hæða fjölbýlishús með 35 íbúðum, einnig í Giljahverfi. 

Kjalarsíða

Kjalarsíða 1A og 1B eru fjögurra hæða fjölbýlishús með 20 íbúðum í hvoru húsi, staðsett í Síðuhverfi.

Útleiga

Samningar um leigu fyrir allt sumarið eru að jafnaði gerðir tímanlega, sérstaklega á íbúðum, en alltaf er eitthvað laust af herbergjum út sumarið. Það er hægt að leigja húsnæði með sama búnaði og boðinn er á veturna, en einnig er boðið upp á leigu með öllum búnaði og fylgir þá eftirfarandi með í íbúðum:

  • Algengustu eldhúsáhöld, sem og borðbúnaður fyrir sex og húsgögn.
  • Svefnstæði eru fyrir sex, þar með fjögur einbreið rúm, svefnsófi og tvær lausar dýnur. 
  • Sex sængur og koddar fylgja.
  • Útvarp, sjónvarp og þráðlaust internet.