Sumarleiga
Félagsstofnun stúdenta á Akureyri, FÉSTA, er eigandi og rekstraraðili stúdentagarða á Akureyri.
Á sumrin, eða frá 1. júní til 15. ágúst, leigir FÉSTA stóran hluta af húsnæðinu út m.a. til starfsmanna og stéttarfélaga.
Til að fá upplýsingar um verð sendið fyrirspurnir á festa@unak.is
FÉSTA rekur stúdentagarða á fimm stöðum í bænum.
Útsteinn
Útsteinn er að Skarðshlíð 46 gegnt íþróttasvæði Þórs. Þar eru 10 íbúðir og 14 herbergi.
Klettastígur
Klettastígur 2 - 4 - 6 standa á móti lögreglustöðinni á neðri brekkunni.
Klettastígur 2 og 4 eru með 9 íbúðir hvort, og Klettastígur með 12 einstaklingsherbergi.
Drekagil
Drekagil 21 er 8 hæða fjölbýlishús með 29 íbúðum og stendur í Giljahverfi.
Tröllagil
Tröllagil 29 er 9 hæða fjölbýlishús með 36 íbúðum einnig í Giljahverfi.
Kjalarsíða
Kjalarsíða 1A og 1B eru 4 hæða fjölbýlishús með 20 íbúðum í hvoru húsi og eru staðsett í Giljahverfi.
Útleiga
Samningar um leigu fyrir allt sumarið eru að jafnaði gerðir tímanlega, sérstaklega á íbúðum, en alltaf er eitthvað laust af herbergjum út sumarið. Hægt er að leigja húsnæði með sama búnaði og boðinn er á veturna, en einnig er boðið upp á leigu með öllum búnaði og fylgir þá eftirfarandi með í íbúðum: