Úthlutunarreglur


1.grein


Við úthlutun fyrir hvert skólaár hafa þeir forgang á húsnæði sem stunda reglulegt nám við Háskólann á Akureyri, sýna eðlilega námsframvindu og hlýða þeim reglum og fyrirmælum sem gilda fyrir garðbúa. Námsframvinda telst vera eðlileg ef umsækjandi hefur lokið að meðaltali minnst 40 ECTS einingum á ári.

2.grein


Starfsmenn skrifstofu FÉSTA úthluta herbergjum og íbúðum á görðum, og úthlutun hvers árs staðfest af tveimur stjórnarmönnum FÉSTA.

3.grein


Umsóknum skal skipt í tvo flokka eftir því hvort sótt er um íbúð eða herbergi. Í umsóknum teljast paríbúðir til íbúða. Miðað við samþykktar umsóknir skal barnafólk ávallt hafa forgang að íbúðum umfram barnlaus pör. Paríbúðir eru eingöngu ætlaðar barnlausum pörum. Þó er heimilt að nýta paríbúðir eins og um tvö einstaklingsherbergi væri að ræða.


4.grein


Umsóknum skal raðað í forgangsröð eftir punktakerfi, sem tekið var í notkun við úthlutun í júní 1992 og endurskoðað reglulega. Sjá fylgiskjal 1.


5.grein


Ef stig eru jöfn þá er FÉSTA þó heimilt að taka tillit til sérstakra aðstæðna umsækjenda.


6.grein


Þegar úthlutað hefur verið lausum íbúðum og herbergjum skulu umsóknir sem ekki hefur verið hægt að afgreiða settar á biðlista.

7.grein


Úthlutun skal lokið eigi síðar en 7 dögum eftir að umsóknarfrestur rennur út. Frestur til að greiða staðfestingargjald er 7 dagar, frá því að úthlutunarstaðfesting hefur verið send út. Hafi staðfestingargjald ekki verið greitt á tilskildum tíma skal fyrst reyna að ná sambandi við umsækjenda og fá fullvissu um að greiðsluseðill hafi borist til hans. Þurfi umsækjandi ekki á garðvist að halda ber að taka þann sem efstur er á biðlista.


8.grein


Úthlutunarreglur skulu endurskoðaðar eftir þörfum af stjórn FÉSTA. Stjórn FÉSTA er heimilt að leyfa gerð samninga við aðra aðila.
Fylgiskjal 1
     
  Punktakerfi fyrir herbergi.  
  Umsækjandi utan Ak. 10
  Umsækjandi innan Ak. 5
  Í HA sl. V ekki á görðum 5
  Áður sótt um 5
  Áður á görðum 20
  Stig samtals:  
     
  Punktakerfi fyrir íbúðir.  
  Sambýlisf. bæði í HA 40
  Sambýlisf. annað í HA 20
  Sambýlisf. í öðru námi 5
  Einstæðir foreldrar 20
  Í HA sl. V 10
  Barn 20
  Barn 10
  Barn 10
  Barn 10
  Áður sótt um 5
  Óbreitt ástand 60
  Stig samtals:  
Twitter