Skólabærinn Akureyri

Á Akureyri þrífst fjölbreytt mannlíf. Þar er að finna alla þá þjónustu, menningu og afþreyingarkosti sem stærri staðir gætu verið stoltir af. Kannanir á viðhorfum íbúa sýna að þeir eru ánægðir með bæinn sinn, skólakerfið, nálægðina við náttúruna, veðurfarið og menningarlífið svo fátt eitt sé nefnt. Fyrir þá sem vilja mennta sig eru starfræktir fjöldi skóla í bænum svo sem verkmenntaskóli, menntaskóli, tónlistarskólar, myndlistarskóli og síðast en ekki síst háskóli.

Að flytja til Akureyrar


Hér síðunni er tengill á vef Akureyrarbæjar með helstu upplýsingum fyrir þá sem flytja vilja til Akureyrar.
Þar finnur þú upplýsingar um heilsugæslu, innritun barna í skóla og leikskóla, flutningstilkynningar og
fleira sem að gagni má koma.

Leikskólar


Í tröllagili er starfræktur leikskóli sem bæjaryfirvöld og FÉSTA standa að. Leikskóli á vegur Akureyrarbæjar er á næstu lóð við Kjalarsíðu húsin.

Grunnskólar


Í næsta nágrenni við stúdentagarðana í Dreka-,Tröllagili og Kjalarsíðu eru reknir þrír grunnskólar allir í göngufæri frá görðunum. Einnig eru skólar í næsta nágrenni Útsteins og íbúða í Klettastíg.

Húsaleigubætur


Allir leigjendur FÉSTA, eiga rétt á húsaleigubótum, uppfylli þeir skilyrði þar um.

Verslanir


Verslunarmiðstöð er skammt frá háskólasvæðinu og einnig eru smærri hverfis verslanir í næsta nágrenni við garðana.

Strætisvagnar


Strætisvagnaferðir eru ókeypis á Akureyri og eru garðarnir örskammt frá viðkomustöðvum vagnanna.

Twitter

Content on this page requires a newer version of Adobe Flash Player.

Get Adobe Flash player