Tröllagil 29 er nýtt og glæsilegt 9 hæða fjölbýlishús með 36 íbúðum. Á fyrstu og annari hæð er fjögurra deilda leikskóli, rekinn af Akureyrarbæ. Á jarðhæð er hjóla- og vagnageymsla. Ein þriggja herbergja íbúð er staðsett á annarri hæð. Á þriðju til níundu hæð eru fimm íbúðir á hverri hæð. Tvær eru tveggja herbergja og þrjár eru þriggja herbergja ásamt þvottahúsi. Geymslur eru í hverri íbúð. Allar íbúðirnar eru tengdar við tölvukerfi Háskólans á Akureyri. Allur aðbúnaður og innréttingar eru fyrsta flokks.

troll
Samgöngur: Frá Tröllagili er um 6 mínútna gangur að háskólasvæðinu á Sólborg og um 25 mínútna gangur að háskólanum við Þingvallastræti.
Umhverfi: Leikskóli er í húsinu, grunnskóli, íþróttasvæði og innisundlaug eru á næstu grösum við Tröllagil.
Orka: Rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð, en hiti er á sameiginlegum mæli.
Tæki og búnaður: Öflugt 100 Mb/s net með þremur tenglum í hverri íbúð er í húsinu. Netið er tengt með ljósleiðara við tölvukerfi HA.
Úthlutunarreglur:  Úthlutunarnefnd raðar umsóknum í forgangsröð eftir sérstökum úthlutunarreglum. Umsækjendur geta lagt fram óskir um hvar þeir óska helst að dveljast.
grunn
Verðlisti í febrúar 2012
Stærð
Verð
+raf+hiti
Tveggja herbergja íbúðir 64 fm. 15 fm. sameign. kr. 82.123 kr. 87.500
Þriggja herbergja íbúðir 75 fm. 15 fm. sameign. kr. 96.014 kr. 105.500