Klettastígur 6 er byggt í þremur einingum og eru fjögur einstaklingsherbergi í hverri. Í einingunni er andyri,
eldhús og setustofa. Hver tvö herbergi hafa sameiginlegan gang og
baðherbergi. Einingin getur nýst sem tvær hálfgildings paríbúðir. Í húsinu
eru tólf einstaklingsherbergi - 21 fm. með geymslu. Baðherbergi og forstofa
fyrir hver tvö herbergi eru einnig í fyrrgreindum fermetrum. Til viðbótar er
9 fm. sameign með eldhúsi og setustofu. Herbergi fyrir fatlaða er á neðstu
hæð. Sorp- og hjólageymslur eru í útihúsi.
![]() |
|
| Samgöngur: | Klettastígur er miðsvæðis milli Þingvallastrætis og háskólasvæðisins á Sólborg. 5-10 mínútna gangur er á hvorn stað. |
| Umhverfi: | Grunnskóli er skammt frá en nokkur spölur á íþróttasvæði og í innisundlaug. Nýr leikskóli er handan við götuna. |
| Orka: | Rafmagn og hiti eru á sameiginlegum mælum |
| Tæki og búnaður: | Einstaklingsherbergin eru búin rúmi, skrifborði og gluggatjöldum. Þvottavélar og þurrkarar eru í sameiginlegum þvottahúsum. Notkun tækja er innifalin í leigu. Húsið er tengt tölvukerfi HA með þráðlausri tengingu innanhúss. |
| Úthlutunarreglur: | Úthlutunarnefnd raðar umsóknum í forgangsröð eftir sérstökum úthlutunarreglum. Umsækjendur geta lagt fram óskir um hvar þeir óska helst að dveljast. |
| Verðlisti í september 2010 | Stærð |
Verð |
+raf +hiti |
| Einstaklingsherbergi | 14 fm. 9 fm. sameign. | kr. 34.832 |
kr. 37.426 |