Kjalarsíða 1a og b eru ný og glæsileg 4 hæða fjölbýlishús með 20 íbúðum hvort. Fimm íbúðir eru á hverri hæð. Fjórar þriggja herbergja og ein tveggja herbergja ásamt þvottahúsi með þvottavél og þurrkara.Geymslur eru í hverri íbúð. Allar íbúðirnar eru tengdar við tölvukerfi Háskólans á Akureyri. Allur aðbúnaður og innréttingar eru fyrsta flokks. Leikskóli á vegum Akureyrarbæjar er næsti nágranni íbúðanna.
troll
Samgöngur: Frá Kjalarsíðu er um 8 mínútna gangur að háskólasvæðinu á Sólborg og um 25 mínútna gangur að háskólanum við Þingvallastræti.
Umhverfi: Leikskóli er við húsin, grunnskóli, íþróttasvæði og innisundlaug eru á næstu grösum.
Orka: Rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð, en hiti er á sameiginlegum mæli.
Tæki og búnaður: Öflugt 100 Mb/s net með þremur til fjórum tenglum í hverri íbúð er í húsinu. Netið er tengt með ljósleiðara við tölvukerfi HA.
Úthlutunarreglur:  Úthlutunarnefnd raðar umsóknum í forgangsröð eftir sérstökum úthlutunarreglum. Umsækjendur geta lagt fram óskir um hvar þeir óska helst að dveljast.
grunn
Verðlisti í september 2010
Stærð
Verð
+raf+hiti
Tveggja herbergja íbúðir ca.60 fm. 15 fm. sameign. kr. 77.207 kr. 85.000
Þriggja herbergja íbúðir ca.73 fm. 15 fm. sameign. kr. 90.269 kr. 97.500