Drekagil 21 er 8 hæða fjölbýlishús með 29 íbúðum. Á jarðhæð er ein tveggja herbergja íbúð ásamt geymslum fyrir íbúðir og hjóla- og vagnageymslu. Á 1. til 7. hæð eru fjórar íbúðir, tvær tveggja herbergja og tvær þriggja herbergja á hverri hæð ásamt þvottahúsi fyrir hverja hæð nema á fyrstu hæð. Þvottahús þeirrar hæðar er í kjallara.
Allar íbúðir í Drekagili 21 eru tengdar tölvukerfi Háskólans á Akureyri.
troll
Samgöngur: Frá Drekagili er um 7 mínútna gangur að háskólasvæðinu á við Sólborg og um 25 mínútna gangur að háskólanum við Þingvallastræti.
Umhverfi: Leikskóli, grunnskóli, íþróttasvæði og innisundlaug eru á næstu grösum við Drekagil.
Orka: Rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð, en hiti er á sameiginlegum mæli.
Tæki og búnaður: Kæliskápar, eldavélar og rimlatjöld fyrir öllum gluggum ásamt zetabrautum í herbergjum og stofu. Þvottavélar og þurrkarar eru í sameiginlegum þvottahúsum. Notkun tækja er innifalin í leigu. Öflugt 100 Mb/s net með tveimur RJ45 tenglum er í hverri íbúð og er netið tengt tölvukerfi HA.
Úthlutunarreglur:  Úthlutunarnefnd raðar umsóknum í forgangsröð eftir sérstökum úthlutunarreglum. Umsækjendur geta lagt fram óskir um hvar þeir óska helst að dveljast.

grunn

Veršlisti ķ september 2010
Stærð
Verð
+raf+hiti
Tveggja herbergja íbúð jarðhæð 51 fm. 20 fm. sameign. kr. 64.316 kr. 70.300
Tveggja herbergja íbúðir 57 fm. 20 fm. sameign. kr. 71.883 kr. 77.400
Þriggja herbergja íbúðir 75 fm. 15 fm. sameign. kr. 87.962 kr. 95.500